Skilmálar Strong Studio
Námskeið og skráning
Þegar þú skráir þig í aðild hjá Strong Studio tryggir þú þér pláss á námskeiði sem endurnýjast sjálfkrafa á fjögurra vikna fresti.
Aðild
Aðild að Strong Studio veitir hagstæðari kjör en stök kaup á námskeiðum. Í aðild er tveggja mánaða binditími frá skráningardegi.
Uppsögn aðildar
Eftir að binditíma lýkur er hægt að segja upp aðild með því að senda tölvupóst á strong@strong.is. Uppsögn tekur gildi við lok yfirstandandi fjögurra vikna tímabils og eru aðildargjöld ekki endurgreidd fyrir hafið tímabil.
Mætingar og uppbótartímar
Ef þú missir af tíma á námskeiði hvetjum við þig til að hafa samband við þinn þjálfara til að kanna hvort möguleiki sé á uppbót innan tímabilsins.
Veikindi og ófyrirséðar aðstæður
Komi upp alvarlegur heilsubrestur sem veldur því að þátttakandi missir af 50% eða meira af námskeiðstímabilinu er hægt að hafa samband við okkur á strong@strong.is. Hvert mál er metið sérstaklega með hliðsjón af aðstæðum. Veitt inneign vegna veikinda getur að hámarki numið 75% af aðildargjaldi.
Endurgreiðslur
Aðildargjöld og stök námskeið eru almennt ekki endurgreidd.
Styrkir
Við bendum á námskeiðs- og tómstundastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem í mörgum tilfellum endurgreiða hluta eða allan námskeiðskostnað.
Markmið okkar er alltaf að finna sanngjarna lausn þegar upp koma ófyrirséðar aðstæður og hvetjum við þátttakendur til að hafa samband við okkur ef þörf krefur.